Um okkur

Við erum sem þokuljós á skýjuð vandamál

Arctic Tern er sérhæft þjónustu- og ráðgjafafyrirtæki á sviði tækniinnviða á Íslandi. Við hönnum, rekum, hýsum, og útfærum stafræna tækniinnviði hér- og erlendis. Við erum með sérfræðiþekkingu af ýmis konar tölvukerfum og hugbúnaði svo sem:

  • Greiðslu- og fjármálakerfi
  • Netkerfi, þar á meðal stór fyrirtækjanet og stofnnet
  • Vefverslanir og önnur netverslun
  • Sjálfvirknivædd viðskiptakerfi á borð við CRM og ERP kerfi

Þau helstu verkefni sem við vinnum reglulega fyrir okkar viðskiptavini eru:

  • Útfærsla, og rekstur, á sérsniðnum sjálfvirkum viðskiptakerfum
  • Uppsetning og rekstur vefverslana
  • Gerð heimasíðna með eða án vefumsjónarkerfi
  • Hönnun, útfærsla, og rekstur netkerfa fyrir verslanir, skrifstofur, og annan atvinnurekstur
  • Uppsetning og rekstur gagnavistunarkerfa
  • Þróun framenda fyrir hugbúnað nú þegar með bakenda
  • Þróun bakenda (API) fyrir hugbúnað nú þegar með framenda
  • Uppsetning og rekstur símkerfa

Jafnvel þó að það sem þínum rekstri vantar er ekki gefið upp hér eru góðar líkur á því að við höfum komið að slíku áður, og/eða að lausnin sé blanda af eitthverju af ofangreindu. Hafðu samband og hjálpaðu okkur að skilja þínar þarfir, svo við getum hjálpað þér að svara þeim.

Félagið heitir í höfuðið á stofnanda þess, Kríu, en "arctic tern" er heiti fuglsins á ensku. Kría hefur áður starfað hjá Reiknistofu Fiskmarkaða, greiðslulausnafyrirtækinu Verifone, og stofnaði upplýsingatæknifyrirtækið Spaugur.

Félögin Arctic Tern og Tern Systems, sem er í eigu Isavia, eru ekki skyld.

Hvað hefur þú í huga?

Byrjaðu samtal við okkur til að hjálpa okkur að skilja þitt verkefni og þínar þarfir. Við handleiðum þig restina af ferlinu.

Hafðu samband